Byltingin
Þetta er nú aldeilis hressandi þetta bankahrun að ég tali nú ekki um byltinguna. Ekki oft sem maður hefur getað sameinað heilbrigða útivist og slagverksleik með jafn góðum árangri. Allir sem maður hitti ljómuðu af einhverjum nýfundnum innri styrk enda andi byltinga sérdeilis magnaður. Sem betur fer fór þessi bylting nokkuð friðsamlega fram. Dæmin í sögunni eru nú ekki öll á þá lund. En byltingar eru rómantískar og ástríðurnar ólga. Þetta ástand allt minnti mig á frábæra kínverska mynd sem ég sá fyrir nokkrum árum, Summer Palace sem segir einmitt sögu elskenda sem lenda í atburðarrásinni miðri á Torgi hins himneska friðar. Þar ruddu skriðdrekarnir voninni í burtu. Hér var að vísu búið að panta danskan trukk en sem betur fer afpanta hann aftur.