Gleðilegt sumar
Það eftirminnilegasta sem ég sá í dag var í sjálfri Kringlunni. Grannvaxinn eldri maður kom út úr Bónus. Mjög fínn í tauinu og með vatnsgreitt hár sem er ekki í frásögur færandi nema hvað hann dró á eftir sér súrefniskút í kerru sem var tengdur öndunarfærum hans. Í hinni hendinni hélt hann svo á því sem hann hafði keypt, litlum blómvendi. 