Síðasta verkefni sem ég gerði var í tengslum við vatnsviku Unicef og unnið fyrir Íslensku Auglýsingastofuna.  Eins og svo oft áður var þetta unnið mjög hratt en allir sem tóku þátt voru í rétta stuðinu enda málstaðurinn góður. Ég fékk sérstakt kikk út úr því að koma þessari Geirafóníu saman. Hvern dreymir ekki um að gera auglýsingu með hverjum Geiranum á fætur öðrum. Að örðum ólöstuðum þótti mér vænst um að sjá kumpánlegt klapp míns gamla vinar Geira Sæm á bak hæstvirts forsætisráðherra og innilegt faðmlag hans við lögreglustjórann.  Það stóð annars tæpt að auglýsingin yrði yfir höfuð gerð því aðal-Geir þurfti eitthvað að redda Íslandi fyrir horn og komst ekki á tökustað fyrr en veitingamenn vildu vera lausir við kvikmyndapakkið. En með hárrétta viðhorfinu, þ.e.a.s. góðum fíling, geirlegu innsæi og snörum handtökum hafðist þetta.  Það má sjá auglýsingarnar hérUnicef