Þetta er tvímælalaust frétt ársins. það hlýtur að vera yndislegt fyrir örþreytta blaðamenn eftir allar fúlu fréttirnar af fjármálamörkuðum að fá að flytja svona magnaða frétt af fólki (og ekki síður dýri) af holdi og blóði. Það eru stórkostlegar sögur allt í kringum okkur. Sigur manns og hunds-andans. Sagan af þessum töfrum sem hundurinn Susti færði eigendum sínum alveg óumbeðinn. Það er svo sannarlega áhugavert að ímynda sér allar þær tilfinningar sem brutust um í hjörtum eigenda hans þegar þau sáu hvað hann hafði gefið þeim. Það eru svo margir áhugaverðir fletir á þessari sögu. Hvort og hver eigi að hafa samband við DV? Hvort það eigi að breiða teppi yfir? Svo margar erfiðar spurningar. Svona geta fréttirnar speglað samtímann þegar vel tekst til. Hvað framtíðin aftur á móti ber í skauti sér er erfitt að spá um. Kannski gufar þessi blettur upp með tímanum eða rennur saman við annan og missir form sitt. Maður á kannski eftir að hafa auga með þessu sérkennilega formi þegar maður röltir í gegnum Góða hirðinn í framtíðinni? Nema það sé kannski hægt að bjóða í listaverkið á ebay fljótlega?