Heimasíðan ljúfa
Velkomin á nýju heimasíðuna mína. Hún er fyrst og fremst hugsuð sem svona portfolio /showreel síða fyrir auglýsingar sem ég hef gert en hér í þessum blogg hluta ætla ég að tjá mig um eitt og annað. Þetta verður vonandi í bland almennt tilfinningablaður, mjög lókal-fréttir, krassandi sögur af mér og mínum eða bara eitthvað svona bransa hux. Ef við byrjum á lókalfréttum þá er ég (og auðvitað mín heittelskaða) nýbúin að eignast litla stúlku. Hún kom í heiminn 29.12.07 og er bæði ægifögur, stórskemmtileg og fluggreind. Ef ég man rétt þá minnir mig að börnin mín séu orðin ca. fimmtán talsins og á öllum aldri - allt stúlkur og Vigdís Finnboga auðvitað þeirra elst.
Maggi wrote,
Þetta er flott síða. Hlakka til að fylgjast með.
Link | March 11th, 2008 at 3:58 pm
Hidda wrote,
Hjartanlega til hamingju með þessa flottu síðu!
Link | March 13th, 2008 at 3:43 pm