Annað skemmtilegt verkefni á síðasta ári voru fimm sketsar sem ég gerði með Jóni Gnarr fyrir VR.   Jón skrifaði og lék öll aðalhlutverk en ég leikstýrði. Jörundur Ragnarsson og Birgitta Birgisdóttir léku síðan flest önnur hlutverk. Þetta var fyndið og skemmtilegt allt saman en að því leytinu sérstakt að þetta verður ekki sýnt opinberlega nema á fyrirlestrum hjá VR. Efnið er hugsað fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og þurfa að að læra  eitt og annað um réttindi sín og skyldur. Í þessum harða bransa-heimi þar sem hver mínúta kostar skrilljónir var ég ánægður með hvað við náðum inn miklu góðu efni á stuttum tíma. Við fórum bara í pönk-gírinn, skutum þetta á tvær litlar HDV vélar og náðum að gera tæpan hálftíma af ansi þéttu gamanefni á tveimur tökudögum. En ef einhvern langar að sjá þetta er víst ekki annað í boði en að hringja í VR og játa fáfræði sína um réttindi og skyldur og fá þá kannski að sitja með unglingunum á næsta fyrirlestri.  Jón átti þarna sem endranær ótrúlega spretti og það rifjuðust upp fyrir mér nokkur gömul Fóstbræðra- augnablik þar sem leikstjórinn var óvinnufær, kæfandi hláturinn slefandi í eitthvert skítugt gólfteppi og næstum búinn að pissa á sig. Annars voru þessir sketsar að nokkru leyti gerðir í anda enn eldra efnis, þ.e.a.s. Hegðun, atferli, framkoma sem við gerðum á RUV fyrir u.þ.b. hálfri öld. VR sketsar