'Uncategorized' Category
Byltingin
Þetta er nú aldeilis hressandi þetta bankahrun að ég tali nú ekki um byltinguna. Ekki oft sem maður hefur getað sameinað heilbrigða útivist og slagverksleik með jafn góðum árangri. Allir sem maður hitti ljómuðu af einhverjum nýfundnum innri styrk enda andi byltinga sérdeilis magnaður. Sem betur fer fór þessi bylting nokkuð friðsamlega fram. Dæmin í […]
Tréhakkavél
Við hjónin undruðumst það þegar allt í einu var búið að fella öll tréin við Heilsuverndarstöðina sem er í næsta nágrenni við okkur. Við höfðum orð á þessu í gær við nágranna okkar sem sagði að eitthvað hefði verið um þetta í blöðunum. Einhver hefði svo gripið inn í og því stóðu enn þessi ca. […]
Gleðilegt sumar
Það eftirminnilegasta sem ég sá í dag var í sjálfri Kringlunni. Grannvaxinn eldri maður kom út úr Bónus. Mjög fínn í tauinu og með vatnsgreitt hár sem er ekki í frásögur færandi nema hvað hann dró á eftir sér súrefniskút í kerru sem var tengdur öndunarfærum hans. Í hinni hendinni hélt hann svo á því […]
Unicef - Vatnsvika
Síðasta verkefni sem ég gerði var í tengslum við vatnsviku Unicef og unnið fyrir Íslensku Auglýsingastofuna. Eins og svo oft áður var þetta unnið mjög hratt en allir sem tóku þátt voru í rétta stuðinu enda málstaðurinn góður. Ég fékk sérstakt kikk út úr því að koma þessari Geirafóníu saman. Hvern dreymir ekki um að gera […]
Gleðilega páska
Það var nokkuð skemmtileg tilviljun að tengdapabbi skildi fá ruglaðan málshátt þar sem hann sjálfur er búinn að vera nokkuð ruglaður upp á síðkastið. Málshátturinn sem hann fékk var „Betri er lítill fiskur en tómur fiskur“. Hann rímaði ágætlega við ástand hans þar sem hann er á batavegi eftir slæma heilahimnubólgu. Hann er sem betur […]
Frétt ársins
Þetta er tvímælalaust frétt ársins. það hlýtur að vera yndislegt fyrir örþreytta blaðamenn eftir allar fúlu fréttirnar af fjármálamörkuðum að fá að flytja svona magnaða frétt af fólki (og ekki síður dýri) af holdi og blóði. Það eru stórkostlegar sögur allt í kringum okkur. Sigur manns og hunds-andans. Sagan af þessum töfrum sem hundurinn Susti […]
Heimasíðan ljúfa
Velkomin á nýju heimasíðuna mína. Hún er fyrst og fremst hugsuð sem svona portfolio /showreel síða fyrir auglýsingar sem ég hef gert en hér í þessum blogg hluta ætla ég að tjá mig um eitt og annað. Þetta verður vonandi í bland almennt tilfinningablaður, mjög lókal-fréttir, krassandi sögur af mér og mínum eða bara eitthvað svona bransa […]
Styrmir 2007
Það var ýmislegt skemmtilegt gert á síðasta ári. Hér má sjá nokkrar svipmyndir úr auglýsingum sem ég gerði.
VR sketsar
Annað skemmtilegt verkefni á síðasta ári voru fimm sketsar sem ég gerði með Jóni Gnarr fyrir VR. Jón skrifaði og lék öll aðalhlutverk en ég leikstýrði. Jörundur Ragnarsson og Birgitta Birgisdóttir léku síðan flest önnur hlutverk. Þetta var fyndið og skemmtilegt allt saman en að því leytinu sérstakt að þetta verður ekki sýnt opinberlega […]